Í gær fylltist eitt af fyrrum húsum íslensku kristniboðanna í Chepareria af glaðværum stelpum en þá hófst langa skólafríið sem stendur yfir næstu níu vikurnar. Tuttugu ungar og glaðværar stúlkur fá að eiga þar griðastað og skjól næstu vikurnar.
Forsaga málsins er sú að eitt helsta áhyggjuefni skólastjóra og kirkjunnar fólks í Pókot er að umskurður kvenna viðgengst enn og í framhaldinu eru stúlkurnar seldar í hjónabönd fyrir nokkrar geitur. Í flestum tilvikum eru þetta ekki gjafvaxta stúlkur heldur stelpur á aldrinum 9-13 ára. Víða eru stúlkur enn beittar þrýstingi, bæði af foreldrum sínum og þjóðfélaginu, til þess að láta umskerast. Þetta er ein af stóru hindrununum fyrir menntun stúlkna og athöfn sem hefur varanleg áhrif á líf þeirra. Sem betur fer hefur kirkjan haft áhrif til þess að tala gegn þessum siðum og skólastjórarnir “okkar” brenna fyrir málefnið. Hættulegasti tíminn fyrir þessar stúlkur eru skólafríin, en þá eiga þær helst á hættu að vera umskornar og giftar.
Nú hafa Kristniboðssambandið og ELCK kirkjan í Pókot, með stuðningi utanríkisráðuneytisins, ákveðið að styðja við frumkvöðlaverkefni Jamas Murray, skólastjóra Propoi Girl’s Secondary School, þar sem hún skapar þessum stúlkum öruggt skjól. Jamas er mjög dugleg að deila fréttum af starfi sínu og baráttu fyrir þessar stúlkur og hér má fylgjast með Facebook síðu sinni https://www.facebook.com/jamas.murray.
Hægt er að styrkja starfið í gegnum gjafareikninga Kristniboðssambandsins.
Kennitala SÍK er 550269-4149.
Arion banki: 328-26-2800 – Íslandsbanki: 515-26-2800 – Landsbankinn: 117-26-2800

