Miðvikudaginn 1. október kl. 20:00 verður Keníukvöld í Kristniboðssalnum.
Við setjum fókus á starfið í Keníu, kynnum nýja þróunarverkefnið sem er unnið með styrk frá utanríkisráðuneytinu og fáum frásagnir úr Keníaferð fyrr á þessu ári.
Guðmundur Guðmundsson flytur hugleiðingu.
Boðið verður upp á kaffi og kenískt chai.
Við hvetjum alla áhugasama um Keníu að mæta.

