Miðvikudaginn 10. september heldur Kristniboðsfélag karla árlegt kjötsúpukvöld sitt til fjáröflunar starfi Kristniboðssambandsins. Hefst það klukkan 19 í Kristniboðssalnum og kostar 3.500 á manninn. Gott væri að fólk skráði sig í síma 533 4900.
Kl. 20 hefst svo fræðslustund þar sem Sigríður Schram framkvæmdastjóri SÍK fjallar um manneskjuna í Guðs mynd undir yfirskriftinni „Gerðu eins og Guð – vertu manneskja“. Allir eru velkomnir á hvorn atburðinn sem er eða þá báða. Að lokinni fræðslustund verður kaffi og meðlæti á boðstólunum.

