Skip to content Skip to footer

Hvað er kristniboð?

Boðun

Kristniboð snýst annars vegar um að breiða út kristinn boðskap um víða veröld. Við viljum að allir fái tækifæri að heyra fagnaðarboðskapinn um Jesú Krist. Þar sem engin kirkja finnst vinna kristniboðar að stofnun hennar.

Kærleiksþjónusta

Kristniboð snýst hins vegar um umhyggju fyrir og þjónustu við nánungann. Við viljum leggja okkar að mörkum við að mæta þörfum þeirra sem minnst mega sín. Kristniboðar vinna að ýmis konar hjálpar-, uppbyggingar og fræðslustörfum.

Án verka er trúin dauð

Boðun og kærleiksþjónusta fara alltaf saman og hvorugt getur án hins verið.

Verkefni SÍK erlendis

SAT-7 sjónvarpsendingar

Kristniboðssambandið er samstarfsaðili SAT-7, kristilegs fjölmiðlastarfs í Mið-Austurlöndum og Norður-Afríku. Um er að ræða mörg lönd þar sem hömlur eru á starfi hefðbundins kristniboðs.

NOREA útvarpssendingar

Kína er alltaf ofarlega í huga kristniboðsvina og mjög þýðingarmikill kristniboðsakur, því þangað fóru okkar fyrstu kristniboðar.

Af götu í skóla

Götubörn í Addis Abeba - Eþíópía er eitt fátækasta land veraldar og eru íbúar um 70 milljónir. Ástæður fyrir því að fólk lendir á götunni geta verið margvíslegar. Erfiðar aðstæður, uppskerubrestur og hörð lífsbarátta hafa leitt marga af landsbyggðinni til höfuðborgarinnar í von um betra líf.

Byggingar skóla og kirkna

Lútherska kirkjan í Keníu hefur með aðstoð frá Íslandi og Noregi reist um 100 grunnskóla að hluta eða öllu leyti í Pókot héraði í Keníu og um 15 framhaldsskóla.

Útbreiðsluverkefni í Keníu

Kristniboðssambandið styrkir kirkjuna í Keníu til að vinna að útbreiðslu fagnaðarerindisins til nýrra svæða sem eru utan þess svæði sem unnið hefur verið á undanfarin 30 ár

Biblíuþýðingarverkefni í Eþíópíu

Kristniboðssambandið styrkir þýðingu Biblíunnar yfir á tungumál Tsamei manna sem byggja Voító dalinn í Eþíópíu.

Rekstrar- og námstyrkir

Mekane Yesus kirkjan í Eþíópíu er afar fjölmenn og nær yfir mjög stórt svæði. Kirkjan hefur vaxið ört á liðnum áratugum og teljast tæpar 6 milljónir til hennar.

Tengslamyndun safnaða

Verkefni um safnaðatengsl þjóðkirkjusafnaða við kirkjur í Afríku er byggt á starfi Kristniboðs- og hjálparstarfsnefndar Þjóðkirkjunnar sem hafið var á árinu 2008 að tilhlutan Karls Sigurbjörnssonar biskups. Það beinist að söfnuðum í lúthersku kirkjunum í Eþíópíu, Keníu og Malawi.

Verkefni SÍK heima á Íslandi

Basarinn

Nytjamarkaður í Austurveri.

Íslenskukennsla

Kristniboðssambandið er viðurkenndur fræðsluaðili og býður ókeypis íslenskukennslu fyrir útlendinga tvisvar í viku yfir vetrartímann. Haustönn er frá sepember til desember og vorönn frá janúar fram í apríl.

Boðun og fræðsla meðal fullorðinna

Samkomuhald, fræðsluerindi og boðun fagnaðarerindisins.

Köllun og kraftaverk

Vikulegir þættir á Lindinni FM 102,9. Fréttir af kristniboði, kristniboðum og stöðu kristninnar víða um heim. Þættirnir eru sendir út á mánudögum kl. 16:00.

Útgáfa

Salt ehf er útgáfufélag í eigu SÍK sem gefur út bækur og fræðsluefni. Það gefur út tímaritið Bjarma, Kristniboðsfréttir, kristilegar bækur og Kristniboðsalmanakið.

Ungmennastarf, kórastarf og krílasálmar

Sitthvað úr sögu kristniboðsins

Maður er nefndur Ólafur Ólafsson
Sjónvarpsviðtal Eiðs Guðnasonar við Ólaf árið 1971.
14 ár í Kína.

Heimildarmynd Egils Helgasonar um Ólaf Ólafsson frá árinu 1993.

0
Stuðningsaðilar
0
Sjálfboðaliðar allt að
0
Kristniboðar erlendis
SÍK Logo
SÍK Samband íslenskra Kristniboðsfélaga

Kt. 550269-4149
Gjafareikningur: 0117-26-2800

Skrifsstofa

Háaleitisbraut 58-60
Reykjavík 108

Netfang: sik@sik.is

Sími: 533-4900

Fylgstu með á samfélagsmiðlum

„Farið því og gerið allar þjóðir að lærisveinum …“

Mattheusarguðspjall 28:18

© 2026. Allur réttur áskilin – SÍK

Cart0
Cart0
Cart0