Skip to content Skip to footer

Samstarf við Kirkjuliga Heimamissiónin í Færeyjum

Undanfarnar vikur hafa SÍK og Kirkjuliga Heimamissiónin í Færeyjum verið í samræðum um samstarf. Framkvæmdastjóri þeirra og formaður stjórnar komu til Íslands og funduðu með starfsmönnum SÍK og formanni stjórnar.

Eftir aðalfundi hjá báðum samtökunum var ákveðið að ganga formlega til samstarfs og framkvæmdastjórum falið að útfæra það nánar í samráði við stjórnir.

Færeyingarnir voru aðeins á undan okkur að tilkynna samstarfið opinberlega og birtu í dag fréttamiðlinum dagur.fo. Hér er linkur á fréttina: https://dagur.fo/nyggj-samstarvsavtala-millum-missionsarbeidi-i-foroyum-og-islandi

Við hjá SÍK hlökkum til samstarfsins við færeyska vini okkar og hvetjum kristniboðsvini til að fylgjast með frekari fréttum af því.

SÍK Logo
SÍK Samband íslenskra Kristniboðsfélaga

Kt. 550269-4149
Gjafareikningur: 0117-26-2800

Skrifsstofa

Háaleitisbraut 58-60
Reykjavík 108

Netfang: sik@sik.is

Sími: 533-4900

Fylgstu með á samfélagsmiðlum

„Farið því og gerið allar þjóðir að lærisveinum …“

Mattheusarguðspjall 28:18

© 2026. Allur réttur áskilin – SÍK

Cart0
Cart0
Cart0