Skip to content Skip to footer

Átt þú tíma aflögu?

Á hverjum þriðjudags og föstudagsmorgni kemur saman hópur af fólki allsstaðar að úr heiminum til þess að læra íslensku. Helga Vilborg Sigurjónsdóttir, kristniboði og kennari sér um kennsluna en henni til aðstoðar er hópur sjálfboðaliða. Það má segja að án sjálfboðaliðanna gengi þetta ekki upp því eftir innlögn dagsins er nemendum skipt í hópa eftir kunnáttu í málinu þar sem þeir vinna með ákveðin verkefni og æfa sig að tala saman undir leiðsögn sjálfboðaliðanna. Um kl 10:15 er kaffihlé sem er kærkomið mörgum. Alltaf gott að spjalla saman yfir góðum kaffibolla. Hópurinn er mjög stór, á milli 50 og 60 manns eru skráðir en í hvert skipti mæta um og jafnvel yfir 30 manns. Nú er svo komið að okkur vantar sárlega fleiri sjálfboðaliða sem eru tilbúnir að gefa af tíma sínum í þetta starf. Það er engin skilda að geta mætt í hvert einasta skipti, allt hjálpar. Sérstaklega vantar fólk til þess að sjá um kaffið góða. Ef þú eða einhver sem þú þekkir getur hugsað sér að taka þátt í þessu góða og gefandi starfi máttu hafa samband í gegnum netfangið helga.vilborg@sik.is

SÍK Logo
SÍK Samband íslenskra Kristniboðsfélaga

Kt. 550269-4149
Gjafareikningur: 0117-26-2800

Skrifsstofa

Háaleitisbraut 58-60
Reykjavík 108

Netfang: sik@sik.is

Sími: 533-4900

Fylgstu með á samfélagsmiðlum

„Farið því og gerið allar þjóðir að lærisveinum …“

Mattheusarguðspjall 28:18

© 2026. Allur réttur áskilin – SÍK

Cart0
Cart0
Cart0