Septemberblað Bjarma er komið út.
Áskrifendur að rafrænni útgáfu hafa þegar fengið blaðið sent til sín og aðrir geta gert ráð fyrir að fá blaðið heim í næstu viku. Nú er einnig hægt að kaupa stakt rafrænt blað á Áskrift tímarit – Salt ehf.
Þema blaðsins er lækning. Bæði er umfjöllun þar um en einnig vitnisburðir eða reynslusögur fólks sem hefur upplifað kraftaverk á eigin líkama.
Aðalviðtal blaðsins er við Sigurbjörn Þorkelsson rithöfund og ljóðskáld um líf hans og störf. Hann hefur um árabil verið öflugur boðberi kristinnar trúar.
Einnig eru í blaðinu fréttir úr ýmsum áttum af innlendum og erlendum vettvangi, vitnisburðir, ferðasaga frá „landi vakninga“, vangaveltur um helgihald, Bjarmabros og fleira á sínum stað í blaðinu.

