Skip to content Skip to footer

Gjafir til starfsins

Peningagjafir til starfsins

Einfaldasta leiðin til að gefa til starfs Kristniboðssambandsins er að leggja inn á gjafareikninga þess. Það má gera í útibúi viðkomandi banka eða í heimabönkum. Eins má að sjálfsögðu afhenda gjafir á skrifstofu SÍK, Háaleitisbraut 58-60, 108 Reykjavík.

Fastar mánaðarlegar greiðslur:

Hægt er að stofna fastar mánaðarlegar greiðslur til starfsins.
Til þess að gera það er best að stofna greiðslurnar í heimabanka. Þar getur þú valið upphæð sem millifærist sjálfkrafa mánaðarlega á starfið.

Einnig er hægt að senda tölvupóst á sik@sik.is með eftirfarandi upplýsingum:

Full nafn, kennitala, netfang og sími.
Upphæð sem þú ætlar að styrkja með og hvort þú viljir gera það mánaðarlega, árlega eða í eitt skipti.
Upphæð verður síðan send í heimabanka.

Gjafareikningar SÍK eru:

Íslandsbanki                 0515-26-002800
Landsbankinn               0117-26-002800
Arion banki                   0328-26-002800

Kennitalan er 550269-4149

Skattafrádráttur

Frá 1. nóvember 2021 geta þau sem gefa til starfs SÍK fengið skattafrádrátt á móti að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Á þetta við um gjafir að upphæð 10-350 þúsund á ári, samanlagt, 700 samtals fyrir fólk sem er með sameiginlegt skattaframtal. Þó skulu gjafir gefnar í nafni beggja. Gjafir millifærðar eru skráðar jafnóðum en þar kemur nafn og kennitala fram. Samskot á samkomum skulu lögð í þar til gerð umslög með nafni og kennitölu ásamt reiðufé eða afriti úr posa eða fá kvittun fyrir framlaginu. Í lok árs eru upplýsingar sendar til Skattsins og gjafir forskráðar á skattaframtal. 

Þau sem búa í Noregi og greiða skatt þar geta einnig nýtt sér skattaafslátt skv. ávkörðun Skatteetaten eftir umsókn frá SÍK. Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu SÍK og gefið upp norska kennitölu, nafn og heimilisfang. Hámarksupphæð er 50.000 NOK á ári á einstakling. 

Frímerki og mynt

Kristniboðssambandið hefur um langt skeið tekið við frímerkjum frá fólki og komið í verð öðrum til gagns og blessunar. Best er að fá frímerkin á umslögunum þar sem sum þeirra eru verðmætari þannig. Ýmsir hafa einnig gefið sambandinu gömul frímerkjasöfn, aðrir koma með gamla mynt og seðla, innlenda og erlenda, póstkort og annað sem verðmæti er í. Allt kemur þetta sér mjög vel. Jarle Reiersen sér um að koma frímerkjunum í verð en Sigurjón Gunnarsson mynt og seðlum. Samvina er þeirra á milli um aðra muni, svo sem gömul póstkort, hlutabréf, trékka, víxla, vegabréfa, kort og annað sem gefið að koma því í verð. 

Tekjur undanfarin ár vegna sölu frímerkja, myntar og seðla auk annarra gamalla muna, voru milli 4 og 5 milljónir króna á ári. 

Frímerkjunum má skila á Basarinn, nytjamarkað Kristniboðssambandsins sem er í Austurveri, Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík eða á skrifstofu sambandsins sem er á Háaleitisbraut 58-60, 108 Reykjavík. 

Einnig er hægt að afhenda umslög og frímerki í Litla húsinu, Glerárgötu 1, Akureyri, á skrifstofu Lindarinnar.

SÍK Logo
SÍK Samband íslenskra Kristniboðsfélaga

Kt. 550269-4149
Gjafareikningur: 0117-26-2800

Skrifsstofa

Háaleitisbraut 58-60
Reykjavík 108

Netfang: sik@sik.is

Sími: 533-4900

Fylgstu með á samfélagsmiðlum

„Farið því og gerið allar þjóðir að lærisveinum …“

Mattheusarguðspjall 28:18

© 2026. Allur réttur áskilin – SÍK

Cart0
Cart0
Cart0