Köllun og kraftaverk á Lindinni
Frá árinu 2020 hefur Helga Vilborg Sigurjónsdóttir kristniboði og heimstarfsmaður SÍK séð um þætti á kristilegu útvarpsstöðinni Lindinni FM 102,9 þar sem hún flytur fréttir af kristniboði og stöðu kirkjunnar um víða veröld. Einnig fær hún reglulega til sín gesti í spjall sem hafa einhver tengsl við kristniboðsstarf á mismunandi vettvangi eða hafa heimsótt kristniboðsakurinn.
Þættirnir eru sendir út á mánudögum kl.16 og endurfluttir síðar í vikunni, m.a. á laugardagsmorgnum kl. 9.
Þeir eru einnig aðgengilegir á netinu og í appi Lindarinnar Lindin mín.
Kristniboðssambandið tekur virkan þátt í starfi Lindarinnar sem fagnar 30 ára afmæli í ár. Auk vikulega þáttarins flytur framkvæmdastjóri reglulega boðskap dagsins og fulltrúi SÍK situr í stjórn stöðvarinnar. Á appinu má finna mikið af góðu og uppbyggilegu kristilegu efni m.a. efni úr fórum starfsfólks og sjálfboðaliða á vegum SÍK. Þar má nefna Biblíulestra og kennslu frá kristniboðunum Skúla Svavarssyni og Ragnari Gunnarssyni. Sr. Guðmundur Guðmundsson héraðsprestur á Akureyri og stjórnarmaður í SÍK hefur einnig búið til þætti og svo mætti áfram telja.
