Jólasöngsamkoma í kvöld

Í kvöld , miðvikudaginn 18. desember kl 20, verður jólasöngsamkoma í Kristniboðssalnum. Það er gott að taka sér stund frá amstrinu, eiga samfélag og leyfa boðskap jólanna að tala til sín gegnum gömlu góðu jólasálmana. Bjarni Gunnarsson verður við flygilinn og Guðlaugur Gunnarsson hefur hugleiðingu. Eftir samkomu er boðið upp á kaffi og kruðerí. Verið hjartanlega velkomin.