Hinn árlegi jólabasar Kristniboðsfélags kvenna verður haldinn laugardaginn 17. nóvember frá kl. 14 í Kristniboðssalnum, Miðbæ, Háaleitisbraut 58-60, 3. hæð.
Hægt verður að kaupa kökur, handavinnu, ýmsa muni o.fl.
Happdrættið verður á sínum stað. Einnig verður hægt að fá sér heitt súkkulaði, kaffi og nýbakaðar vöfflur.
Þeir sem vilja gefa vörur eða kökur á jólabasarinn geta komið með það eftir hádegi á föstudeginum.
Allur ágóði rennur til starfs Kristniboðssambandsins.