Fagurt er fótatak þeirra er flytja fagnaðarboðin góðu. Þessir menn hafa gefið Jesú líf sitt og ferðast um í Pókot í Keníu, til að fleiri megi frelsast frá myrkri og illsku til ljóss og friðar í Jesú Kristi. – Kristniboðssambandið styður með beinum fjárframlögum störf þessara manna og margra fleiri. Má bjóða þér að vera með og styrkja starfið?
Gjafareikningurinn er: 117-26-2800 Kt.: 550269-4149
Frá hægri á myndinni:
Nicholas Loyara, starfssvæði Kasei og Korokou.
Christopher Maiyo, starfssvæði Marakwet og Kimarich.
Julius Lokir, starfssvæði Kiwawa og Alale.
Samson Kapelinyang, starfssvæði Baringo og Chemolingot.
William Komole, starfar í Ompolion og Turkwel.